Á síðasta fundi bakhóps var ákveðið að ráðstefna Borgarfjarðarbrúarinnar yrði haldin 7. júní í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar mun hver skóli ásamt faghópum gera samantekt á sinni vinnu í vetur. Formaður bakhóps mun fara yfir það hvernig markmið verkefnisins hafa náðst á þessum þrem árum. Menntamálaráðuneytið mun flytja erindi og úttekt ráðuneytisins á verkefninu verður gerð skil.