Fimmtudaginn 22. október var haldið námskeið á Varmalandi fyrir kennara á mið- og unglingastigi. Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir og Snæbjörn Reynisson kynntu kanadíska kennsluaðferð sem þau hafa verið að innleiða í skólanum. Eftir innlegg frá þeim fóru kennarar í vinnuhópa og unnu verkefni byggð á þessari hugmyndafræði.